blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

6.30.2004

Álftadalur og súrsaðir fuglsungar

Ferðin á síðustu helgi var í heildinna bara fín. Gott að komast í geðveikinna hjá ömmu og afa. Þó útvarpið og sjónvarpið sé alltaf í botni þá er eitthvað afslappandi við að vera hjá þeim. Við öll þessi læti heyra þau að sjálfsögðu ekki neitt, þar af leiðandi búa þau bara til sínar sögur og fylla upp í eyðurnar í ´því sem maður er að segja þeim... hí hí hí.. frekar fyndið. Ruglið sem velltur uppur þeim er rosalegt.. halda því svo fram að maður hafi verið að segja þeim þetta.. :l Planið var að labba jökulshálsin eins og vanalega en varð frekar væld á síðustu stundu og ákv. að fara nýja leið. Fórum upp hjá sæluhúsinni á Fróðárheiði, upp að korra og vestanmegin við hann niður í Álftadal. Þetta er 3 tíma ferð sem er hreint út sagt æðisleg. Ég fékk nákvæma leiðarlýsingu hjá afa fyrir brottför, auk allra örnefna á svæðinnu.. sem eg man að sjálfsögðu ekki nema 1/3 af! Honum langaði svo rosalega að fara með. Þetta er svæði sem hann smalaði á fyrripart síðustu aldar þannig hann þekkir þetta eins og lófan á sér. En nú verður ekki aftur snúið.. búið að leifa bakteríunni að grassera smá þannig gönguskórnir hafa verið bustaðir og næst verða það vestfirðirnir. Fer á þriðjudaginn og planið er að trítla þar í nokkra daga ásamt þvi að vinna. Ég hlakka ótrúlega til þar sem eg hef aldrei komið á suðurhluta vestfjarðanna. Það verður einnig ljómandi að koma aftur á norðurhlutan :) vildi að eg gæti farið út á Snæfjallaströnd og út á Hornstrandir en það verður að geymast til betri tíma. Gamla mín í DK spurði hvort ég ætlaði ekki að koma við hjá ömmu Stefaníu á Hólmavík! Ég gæti farið þangað og rifið kjaft yfir öllu þá mundi amma gamla halda að stebba væri komin heim. Hætti mér samt ekki þangað. Villimaðurinn hann afi hennar myndi sennilega gefa mér súrsaða fuglsunga til að narta í!!!!

6.28.2004


Olkelda i Hrisa Posted by Hello


Med trollunum Posted by Hello


Efst i Alftadal Posted by Hello

6.26.2004


veidinn og muderinginn mikla ad haetti grams Posted by Hello

Humar og kræklingur

Gamla ákvað að halda uppá gamlar hefðir og fagna Jónsmessu. Fögnuðurinn var fólgin í að vaka nóttinna og sjá sólarlagið. Það var bjart yfir þannig þetta leit bara vel út. Þegar klukkan hafði slegið miðnætti var komin tími til að snúa sér að matseldinni : ) Hafði keipt helling af humar, eftir að hafa gert að honum og makað hann í hvítlauk voru herlegheitunum skellt á grillið og þvílíkur unaður! Það var svo rosalega kalt að gamla varð að vera í dúnúlpu við grillið.. það var sannkölluð vetrarstemning yfir þessu. Við sátum þannig inni fram eftir morgni og horfðum á litadýrðinna á himninum. Amma og Afi voru í dundur stuði og sögðu sögur alla nóttinna frá því í gamla daga. Ég hef alveg rosalega gaman af því þegar þau detta í þennan gír. Þau eru alin upp á sama stað og eru jafngömul þannig þau þekkja sömu sögurnar frá sitt hvoru sjónarhorninu.. og auðvita tala bæði á sama tíma.. Þau eru fædd 1923 og hafa þvi lifað á miklum umbyltingartímum. Iðnbyltinginn á sér stað á Íslandi þegar þau eru 16 ára. Þau muna því eftir upplifuninni að sjá og nota í fyrsta sinn framandi tækni. Þegar lýða tók að því að gamla var að nálgast að hafa vakað í sólarhring voru rafhlöðurnar hennar búnar. Amma var búin að búa um mig (ullarteppi undir!! ) þannig það mér varð amk ekki kalt þessa jónsmessunótt.
Eftir ljúfna og stuttan svefn var rás 2 komin í botn og kaffi byrjað að sjóða í eldhúsinni þannig það var ekki spurning að skríða fram úr og koma sér fyrir á “mínum” stað í eldhúsinni og njóta! Það er svo gott að sitja uppá borði við eldhúsgluggann, drekka kaffi og njóta útsynisins snemma morguns.
Uppúr hádegi var komin tími á að ná í dýrið á leikjanámskeiði. ooohh hvað það var gott að sjá hana aftur. Við fórum í sund og dunduðum okkur fram eftir degi.. aðalega að kjamsast og knúsast : ) Nýttum tíman vel því hún var að fara á ættarmót með föðurættinni eins og hún sagði sjálf. jæja svo meiri matur! Fórum ínní fjöru og týndum helling af krækling til að setja á grillið. Fannst það ekkert smá skemmtilegt. Amma klæddi mig í stigvél og húfu af sér og úlpu af afa (mátti ekki óhreinka mín föt!)
Þannig ég var eins og niðursettningur þarna í fjörunni, bæði stigvélin láku, ulpan var bara fyrir mér og húfan... já.. og mér fannst þetta æði!!






6.25.2004

Lifi innri bylting!

Það á sér stað barátta. Barátta fyrir því að vera, hugsa, hafa skoðannir, standa fyrir sínu og upphefja. Mikið helvíti er þetta erfitt. Eins og eg hef talað um áður er það maður sjálfur og engin annar ser Á að setja sínar skoðannir og viðmið, en stundum er það eins og að standa á vígvelli þegar aðrir vilja breyta því. Eg er alls ekki að segja að maður eigi BARA að fara sínar eigin leiðir og gefa skít i allt og alla og hlusta ekki á neinn. Auðvita er það holt og þroskandi að hlusta og skoða skoðannir annarra en svo er það val manns sjálfs hvað maður gerir við þær skoðannir. Tekur þær til athugunnar, gerir þær að sínum að einhverju leiti eða öllu, eða bara er ósammála. Þetta virðist vera svo rökrétt og auðveld skoðun. Ennn... svo verða á vegi mans persónur sem vilja gleypa mann og gera sitt að manns eigin! Persónur sem láta það ekki nægja að segja sína skoðun og ýja svo að þeim í framhaldi af þvi heldur hætta ekkert fyrr en þær hafa talið sig “sigra”! Óneytanlega kemur virðingarstuðullinn þar sterklega inn um hversu sterk baráttan verður fyrir mann sjálfan. dam! ekkert hægt að segja en viva la resistance

6.22.2004


Gamla og Runar Posted by Hello


I nyja landinnu :) Posted by Hello

Cos i need heaven

Sunnudagur 20.06.04
Vaknaði við sms! Það er komin gullfalleg stelpa í heiminn! Óendalega falleg og 47 sentimetrar : ) Allt gekk vel þannig “send good thoughts” kertið sem við kveiktum á í gær hefur skilað sér. Með bros á vör lúllaði ég mér meira enda ókristilegur tími til að fara framúr á sunnudegi! Eftir kaffi og nudda úr stírurnar tók alvaran við! TRIVIAL PURSUIT!!!!! Það var gjörsamlega hraunað yfir mig í fyrsta leik!! tapaði og varð frekar fúl yfir þvi.. enda tapsár eins og hægt er að hugsa sér. Þegar við við litum á klukkunna og hún var að verða fjögur og við ekki komin lengra urðum við að gera eitthvað í þessu.. skelltum okkur í gallann og krúsuðum nágrennið .. að sjálfsögðu með ís, Brynja! ég elska þig!!!.. Skelltum okkur á Svalbarðseyri.... hhhmmm já fórum þangað.. ´fint!!! Sá fram á að ég gæti keypt mér einbýli þar í stað íbúðarinnar sem nálgast mig óð-fluga! en eg veit ekki!!! ég held ég myndi í alvöru ekki lifa veturinn af þar....
Eftir að hafa skannað miðbæinn, kaffihús og matsölustað þa ákv. við að fara heim til að ná seinni helmingi af leiknum! ;) Eftir gleði og sætan sigur okkar manna, varð alvaran að taka við.. sérstaklega eftir tap dagsins... við urðum við að spila aftur... og ég malaði hann !!!! shit hvað það var að gera það fyrir mig... tók McDonalds dansinn og allt eftir sigurinn!!
Seinni helmingur af Office var óyfirfarinn þannig það var ekki spurning hvað við gerðum næst! ó mæ god hvað þetta er skemmtilegt...ég er bókstaflega búin að gráta úr hlátri.. skrytið að fylgjast með karakterinum,,, og elska að hata hann.... verð að deila með ykkur speki úr seinni seríunni sem ég er ótrúleg hrifin af! :

Excalibur by David Brent

I froze your tears and made a dagger
and stabbet it in my cock forever
it stays there like Excalibur
Are you my Arthur?
Say you are

Take this cool, dark, steel-ed blade
steal it
Sheath it in your lake
i´d drown with you to be together
must you breathe?
Cos i need heaven

Svo verður bara hver að túlka fyrir sig!!

Elsku gyðjur!

Til hamingju með daginn!!! 19 júni er okkar dagur. Gamla er komin í bleikt og ætlar að halda daginn hátíðlegan. Búin að gera tilraunir að koma nýja sambýlis manni mínum í bleikt, ekki tekist ennþá, en gefst ekki upp ;)
Kæru konur upphefjum gyðjunna í okkur og deilum því. Við erum svo frábærar og snjallar að það er sind ef þið haldið aftur af ykkur og deilið því ekki með umheiminum. Hvað er fallegra en kona sem er sátt og nýtur lífsins? Lífið er of stutt fyrir neikvæða strauma. Tilbyðjum og elskum gyjunna innra með okkur. Fyrst og fremst elskið og hlúið að ykkur, annað verður bara bónus í framhaldi af því. Hugsið ykkur fullnæginguna sem fellst í því!! Þessi dagur á að minna okkur á hversu miklu við höfum náð fram í þessu karllæga samfélagi, hann ætti einnig að minna okkur á að sigrinum ætti ekki að fagna einu sinni á ári heldur á hverjum degi.
Brilljant lýsing á því hvernig konur litu á sig og sín hlutverk las ég í grein fyrir skemmstu.. þetta ætti að vekja okkur til umhugsunnar um þá breytingu sem átt hefur sér stað í viðhofum okkar : “ Til skamms tíma hafa konur átt í erfiðleikum með að þetta (monta sig/vera stoltur af sér) en karlar. Við fengum einfaldlega þau skylaboð í uppeldinnu, kynslóð eftir kynslóð, að það væri ljótt að monta sig. Miklu betra væri að gera sem minnst úr eigin verðleikum. Við áttum að vera eins og myndalega húsmóðirin sem spurð var hver hefði eldað þennan gómsæta mat. Hún svaraði af þessu dæmigerða, kvenlega litillæti sem áður þótti mikill kostur : “ Það var nú bara ég – ef mig skyldi kalla.” “

Stóri og litli kroppur

Föstudagur 18.06.04
Stóri kroppur og litli kroppur komust út úr bænum uppúr 10 og stefnan var tekin beint á nýja landið í Borgarfirðinum. Óendalega sæt lögga tók á móti okkur við Hvalfjarðargönginn og vísaði okkur frá vegna lokunna... stóri var frekar fúll yfir þessu en ég sætti mig alveg við að keyra eftir að móturhjólalöggan var búin að brosa til min ;). Trítluðum okkur uppí land og litum á gripinn! Útsynið er svo rosalega flott, gamla er svo ánægð yfir þessu og hlakkar svo til að eyða tíma hér!! Svo var stefnan bara tekin norður. Lentum á Ak um miðjan dag og tékkuðum okkur inn í pleisið, sem er bara fínt.
Að sjálfsögðu fórum við í nettó til að skilja eftir aura í heimabyggð, styrktum ríkið á staðnum og bókstaflega 20 kíló af klaka var keypt svo ekki yrði vöntum.
Þannig við vorum klár í allt. Eftir að hafa horft á boltann.. eða hann horfði á boltan og eg á læri og rassa og sæt andlit.. tókum við smá office senu. Þessir þættir eru rugl þeir eru svo fyndnir.
Föstudagar eru ekki mestu stuð dagarnir en við urðum að tékka á næturlífinu. Skelltum okkur í diskó gallann og trítluðum okkur af stað. Við verðum að viðurkenna að við vorum í eldri kanntinum og við vorum ekki að tapa okkur yfir karokí stemmunni né dúndur hljómsveitinni sem var að reyna að vera betri en Valtýr.. en það stoppaði okkur ekki í að tjútta feitt og skemmta okkur konunglega. Mér fannst heldur ekkert leiðilegt að skoða sætu litlu strákanna ;)

6.17.2004

Ofvirkni, rúsínur og torfæra

Aldurinn er að færast yfir mig!! svoldið skerí! í dag er sem sagt langþráður frídagur með engin plön nema að vinna upp svefnleysi og rólegheit.. nei!! gamla vaknaði klukkan 630 og getur ekki með nokkru móti sofnað aftur! það er ekki eins og eg hafi sofnað snemma í gær.. Átti alveg ljómandi ljúfa og skemtilega kvöldstund .. ;) .. og kom ekki heim fyrr en rúmlega 2 og held reyndar að klukkan hafi verið um 3 þegar það slokknaði á mér.. hvað geriri maður af sér klukkan 7 a morgnanna?????? ...aaaarg!
Það er þvílíkt eirðarleysi í mér að ég er að tapa mér.. geri mér fulla grein fyrir því að þetta er ef til vill tími til að drepa ofvirknikvikidnið, róa sig bara niður og ballansera sig... ég er alveg að reyna! en það er ekki að gera sig. Held að ástæðan sé sú að í gær dag tók ég slökun sem ætti að duga mér fram í næstu viku. Fór í sund og dundaði mér það í 2 tíma, afraksturinn var sá að ég var eins og rúsína það sem eftir var dags og fékk á mig svartan blæ af sólinni. það var ekkert smá ljúft að dingla sér þarna á milli potta og sólbaðs.... engar áhyggjur.. fór ekki mín í sunlauginna þannig engin líkamsæfing átti sér stað! ;) Talandi um það... skil ekkert í mér að hafa ekki farið í sprikl núna í þó nokkurn tíma. Bakið er farið að segja til sín og hrópar á æfingu, tala nu ekki um hálsin... dam.. þýðir ekki bara að tala um þetta.. nú verður bara að framkvæma... hehe.. var þetta sannfærandi??? sjáum til :)
Akureyri á morgun ! ætlum að leggja af stað i fyrramálið og trítlast norður í rólegheitunum. Íbúðin er rúmlega 90 fm !! fjagra herbergja luxus pleis með öllu tilheirandi.. þannig við komum örugglega ekki heim fyrr en á næstu helgi hehe.. Vorum að tékka á sjallanum í gær.. og gaman að segja frá því að það er torfærumót stemning alla helginna og dúndur hljómsveitin saga class að spila á laug....hhhhmmmm... Reyndar minnti það mig á að síðast þegar eg fór í svona helgarferð til AK þá var einnig torfærumót og man ekki betur en að eg hafi vaknað einn morguninn með gullverðlaun frá því móti um hálsin!! Einhverjum hefði greinilega fundist að eg verðskuldaði það hehe :) Þetta er allt voðalega spennandi og eg hlakka til ;) Búin að taka saman digital vélina og tölvan er klár svo ég geti deilt vitleysunni og ferðinni ;)

6.16.2004

Dýrið gengur laust !!

Vá hvað ég er dugleg!! ég er búin ad henda af mér áfangaskýrslunni og það stefnir allt í undirskrift á mánudaginn! Samningurinn felur í sér 5 milljónir á ári og starf til 2007. dam! sem beturfer er undirskrift einu sinni á ári þannig ég er ekki enn búin að skjóta rótum hér í mekka skemmtanalífsins!!!! Dýrið er farið vestur í einhvern tíma þannig minns er bara frjáls og er búin ad hleipa skemmtanadýrinu mínu lausu.. nú er bara að hamast á því þar til ég þarf að setla mig niður aftur í hlutverkið!! Stefnan er tekin á Akureyri um helginna.. búin að legja íbúð og allt er klárt! vvvííí´það verður rosalegt rokk. Skylst að Páll Óskar verði þar með eitthvað gigg.. þannig það er aldrei að vita að ég taki upp þráðin þar sem ég skildi við hann í Ingólfskaffi hér um árið....hhhhmmmm hehehe

6.15.2004


vaa!!! hvad eg er buin ad tista yfir tessu i dag. sorglegt.. nnnaahhh!!!!! Posted by Hello


Dyrid a afmaelisdaginn Posted by Hello

6.14.2004

Brúðkaup, Afmæli, yfirlið og ljúfleiki ;)

Það má segja að ég sé rétt að ná mér núna eftir helginna! Eftir að vera búin að vera í felti alla vikunna tók keyrslu helgi við! föstudagur fór í að gera allt klárt fyrir afmælið og passa grams. laugardagurinn var tekin snemma í að hjálpa við að gera klárt fyrir brúðkaupið svo trítlað heim, farið í pæjugallann og dressa dýrið og svo mætt í veislunna rétt eftir hádegi. Pælinginn var að vera bara smúð á því og vera ekkert að sulla í hvítvini því stórafmæli beið mín um kveldið!! sú pæling dugði í klukkutíma þannig uppur kl 2 var gamla komin með kalt hvítvin og komin í gír! Brúðkaupið var æðislegt og ég litla músin skældi yfir þessu öllu saman, ekki stórt hjarta þrátt fyrir miklar yfirlísingar um að vera alltaf "kúl" á því!!! Familian mætti öll að sjálfsögðu! í familíunni eru bara stuðboltar þannig þegar leið á brúðkaupið og svona flestir farnir þá stóð eftir Brimisvallarættinn frá 1 árs til 81 og rokkaði! Ég lét mig að vísu kverfa um 7 en familían tjúttaði fram á miðnætti. Á þessum tíma punkti hefði verið skynsamlegt að fara heim, en þar sem ég geri lítið skynsamlegt þessa daganna fór ég bara heim og skipti um föt og var mætt í 30 ára party stuttu síðar. Það var rosa gaman að sjálfsögðu! hélt ræðu og talaði hátt allan tíman enda var ég orðin frekar svört þarna undir lokin. Þegar partyið ákv að fara á ölstofunna var komin tími á gömlu að fara heim enda beið 9 ára afmælisfjör daginn eftir! Dýrið var svo spennt að hún vakti mig kl 9!!!! ég hefði alveg viljað láta renna meira af mér en nú var það ekki spurning um það.. nú var bara að skella sér í bakstur og blása upp blöðrur ( dam hvað það er erfitt að blása í blöðrur í þessu ástandi!!! ) Rúllaði samt um bakstrinum enda er ég snildar bakari :) Svo mætti familían ÖLL! sennilega 40 manns í heildinna. Pabbi kyssti mig bara og klappaði mér enda sá hann strax hversu hress ég var.. en held að ég hafi nú náð að halda þessu hálfleindu fyrir öðrum:) Þetta gekk samt glimrandi vel og allir voru sáttir :) Eftir að allir voru farnir tóku skúringarnar við niður á skrifstofu.. allar 3 hæðirnar!! og og og já ég var gersamlega finító!! eftir þetta og leið útaf (bókstaflegt yfirlið) um leið og ég kom heim.
Mánudagur var þreyttur, byrjaði á því að sofa yfir mig;)og skreið í gegnum daginn dam dam dam erfitt! Þannig það var ótrúlega ljúft að eiga rólegt og skemmtilegt kvöld í gærkveldi að gera bara það sem er skemmtilegt í ótrúlega fallegum félagsskap;)

6.11.2004

Gifting og parkodín

bíssý helgi framundan! æsku ædolið mitt ætlar að ganga í það heilaga á morgun. Athöfnin fer fram á ströndinni við ægissíðu. ég hlakka ofsalega mikið til!! :) Þetta verður rosalega gaman.
Dísa skvísa heldur svo uppá 30 árin um kveldið þannig það verður rokkað vel ;) sunnudagurinn verður sennilega parkodín!! 9 ára familíu afmæli hefst kl 16.00!! þessi helgi verður skemmtileg reynsla! vonum bara það besta! ;)

6.09.2004

Gott að liggja í sandinum í Skarðsvík

Hvað skiptir máli? Geta verið róleg og hugsað skynsamlega? Hvað er gaman við ad vera alltaf skynsamur? er það ekki línan þar á milli sem maður er að leita að? vill maður finna þessa línu eða er það spennan við að leita að henni sem gerir hlutinna áhugaverða, eftirminnanlega og ef til vill lærdómsríka? legg áherslu á “ ef til vill” þvi það virðist vera að sumir hlutir séu þannig gerðir.. eða maður þannig gerður.. að það virðist alveg sama hvað maður hleypur oft á sömu hurðinna þá læriri maður ekki. já auðvita gerir maður sér grein fyrir þvi en það er samt svo skrytið... virðist ekkert skipta máli þó maður dundri á hurðinna með öllu sínu afli, maður lærir ekki.... eða er það að maður vill ekki læra!! Er maður ad flyja hluti, ómeðvitað og meðvitað, vill samt ekki viðurkenna það fyrir sjálfum sér? Af hverju er maður að leita? hvað heldur manni réttu megin við línunna? hvað skiptir mann máli? Held að maður sjálfur skipti mestu máli. Ef maður er ekki sáttur við sig og það sem maður gerir og það sem maður er að gera þa koma upp árekstrar við mann sjálfan.
Skiptir ekki mestu máli að vera sát og þegar því marki er náð er allt annað bara bónus. bottom line... það er ekkert sem gerir mann sáttan eða hamingjusaman nema maður sjálfur. Í framhaldi af þvi er svo auðvelt að deila þvi með öllum, það er eigin geislun, viðhorf og framkoma sem aðrir sjá. Það ætti að vera eitthvað sem er eðlilegt framhald af þer þvi þú ert þú, ekki eitthvað sem þú þarf að búa til eða eitthvað sem þú þarft að reyna að ná í og halda uppi. Ef maður hugsar fyrst hvað finnst hinum .. en ekki hvað finnst mér þá er maður farin að leggja mat mans sjálfs í annara hendur. Hvað gerir það fyrir mann sjálfan? leiðir það ekki til þess að maður fer ad efast um eigin hugmyndir og hugsanir? fer maður ekki að treista á að aðrir segi manni hvað manni eigi að finnast þvi maður treistir ekki lengur sínu eigin. Það leystir mann einnig undir ákveðni ábyrgð, maður hleipir engum að sér þvi það veit engin í raun hvað þer finnst eða hvað þitt er þvi þú ert farin að fylgja því sem öðrum finnst en ekki það sem þér finnst. Þeirra verður þitt.
Svo byrjar baráttan... þín innri barátta, sem leiðir til niðurrifs því þú upphefur það sem öðrum finnst en rífur niður það sem þér finnst og það skiptir i raun ekk máli þó þú fáir hrós eða viðurkenningu fyrir þitt einhverntíman á leiðinni því þú ert svo fyrir löngu hætt að treysta þínu að það verður verðlaust, alveg sama hvað sagt er um það.
Mundu það ert þú, þitt álit, þínar tilfiningar sem eiga að lifa og skipta máli.. ekki annarra.

Álfaborgir og Batman

Afi vakti mig kl 730. Þá var hann komin í gallan og tilbúin til að fara út á sjó! (nú veit ég hvað ofvirkni mín á eftir að gefa mér! Þegar ég verð gömul verð ég eins!! Gersamlega óstöðvandi og geri allt með áhlaupi... spurning bara hvað það verður.. ekki verða það veðrustöðvar!) Það var því ekkert annað en að drífa sig á lappir og slíta sig frá skrýtnu draumunum mínum. Mig langaði rosalega mikið að fara með honum út á sjó – það var svo mikil stilla að það hentaði mér fullkomnlega! ég myndi sem sagt ekki gubba út allan bátin, skjóta mig svo í fótinn með neyðarblisinnu og hringja eftir þyrlu landhelgisgæslunnar til að láta ná í mig!!!
EN sem sagt hálftíma eftir upprisu var ég farin af stað og er búin með mest allt nesið. Vegna veðurs varð ég að skella mér í pappírsvinnuna!!! Og það er ekki til notalegri staður en Skarðsvík til að dunda sér við eitthvað slíkt. Þetta er svona útlensk strönd á íslandi! hvít og klettar allt í kring. Ég henti mér í sandinn og fór yfir öll gögn dagsins. svo bara loka augunum og hlusta á sjóinn og fuglanna... Svo eru það myndirnar í hrauninnu! Maður er umkringdur álfaborg og tröllum sem hafa mætt sólinni og standa þar síðan. Það eru heilu sögurnar sem myndast í hrauninu, það er svo frábært :)
Sem sagt hefur dagurinn bara verið smúð! Einungis 3 fuglar og eitt lamb voru í lífshættu mín vegna þannig það er vel sloppið.
Ég fór áðan niður á bryggju þegar afi og hásetinn (báðir á níræðis aldri!) komu í land. Hélt fyrst að Batman sjálfur væri mættur í stýrishúsið.. en nei þá var það afi með þessi líka rokna flottu sólgleraugu (verðið ad skoða myndina vel :) ) Ef þetta er ekki að vera kúl þá veit ég ekki hvað!!


Rosalega anaegdur Posted by Hello


Ledurblokumadurinn Posted by Hello

6.08.2004

Sól, hestar og harðfiskur!

Brilljant dagur!! smá bögg en get ekki sagt annað að í heildinna hafi hann verið flottur! geðveikt veður sem skylaði sér í rauðum kynnum og veðursteiktu andliti.. og ekki má gleyma farmers lookið (eins og mer var sagt að það kallaðist!) ég er búin að þræða mæla frá reykjavík vestur á snæfellsnes. Búin með allar stöðvar að borgarnesi þannig minns var bara dugleg og aktivitetið var á milljón í dag!!!ég kom við hja pabba (glúpps.. eins gott.. hef ekki komið í mörg ár og hann er ad flytja eftir hálfan mánuð.. þannig það var að verða síðasti séns!) Pikkaði litlu systur upp og hún dinglaði með mér þessar krókaleiðir sem ég fór um sveitirnar! bændunum fannst það frekar skrytið að stelpa skyldi mæta en held að þeim hafi ekki fundist það neitt leiðilegt, miðað við aulahúmorinn sem rann út úr þeim! dam hvað eg er hrifin af karlmönnum sem eru ekki í beljugalla og anga af súrheyi!!!! víst ég var byrjuð á að vera góð og heimsækja fólk svona í leiðinni þá kom ég lika við hja ömmu í sveitinni!! Það er í raun heill kapituli útaf fyrir sig en það fannst mér einstaklega skrytið. skrýtið á þann hátt að vera að heimsækja ömmu sína og þekkja hana ekki neitt.. nada.. síró !! Hún er alger hestakona.. eða hún er bara hestakona er réttara sagt og ég .. já .. hhaamm er það ekki! hendi dýrinnu mínu yfirleitt í þvottavélinna þegar hun er búin ad vera á hestbaki með afa sínum!!! ég get bara ekki að því gert.. mér finnst þessi lykt viðbjóður! allavega.. að ömmu aftur! við höfðum sem sagt ekkert sameiginlegt til ad tala um þannig við ræddum bara hesta.. og eg vona að ég hafi sagt já á réttum stöðum því eg veit voða lítið um hvað hun var að tala!! en elska hana og virði fyrir það sem hún er...
klukkan var orðin svoldið margt á þessum tímapunkti þannig komin timi til að finna sér næturstað! og hvað er betra en að fara back to the roots til grams! amma rokk er að vísu enn í rvk en afi hrítur hér við hliðinna á mér núna.. enda var fyrsti róðradagurinn hjá honum í dag.. hugurinn´er til staðar en hann er gersamlega búin og talar uppur svefni þessi elska. ég er líka alveg búin.. líkist helst Heiðu í sögunni frægu.. með rauðar kynnar og með krúttlegan afa við hliðinna á mer !! vantar bara geiturnar þa væri allt klárt... verð að láta harðfiskinn duga í staðinn... enda bæði afurðir!!! jæja farin að bulla... þetta er fint í bili :)


back to the roots! Posted by Hello

Landsbyggðin!! hér kem ég....

jæja ! gamla er að fara af stað! Er komin á dundur jeppa og með sólgleraugun þannig hún er algerlega óstöðvandi núna ;) Hún verður í símasambandi og ætlar að halda uppi óstöðvandi lýsingum á ferðum sínum hér á framfarablettnum. knús í bili

6.07.2004


dyrid med bekkjar afmaeli Posted by Hello

6.05.2004

Hvar eru kökurnar??

Litla krúttið mitt, hann bróðir minn átti afmæli 3 juni sl. bara láta (já þig litli minn) vita að eg er enn að býða eftir símtalinnu.... þú veist, þessu" hringi í þig eftir smá stund" og heimboðinnu með kökunum ;)

6.04.2004

Dam!!!!

Hvað er að gerast fyrir mann þegar maður er farin að hafa það mikla stjórn að maður kemur sjálfum sér verulega á óvart????? Þrátt fyrir ad hugurinn sé löngu farin af stað þá samt er maður tiltölulega rólegur!... rólegur er alls ekki rétta orðið, hehehe veit ekki hvernig mér dettur í hug ad skrifa þetta lýsingarorð um mig... er yfirleitt til vandræða hvað eg er ekki róleg.. en... jafnvægi, hæg..eða bara þæg!!! nnnaaaei eg er að leita af orði yfir þetta.....hhhmmmm veit ekki.. eitthvað í þeim lýsingarorðsflokki!! kanski er það bara kikkið að vera í stjórn!
dam girl! það er eitthvað að gerast!!!!!

6.03.2004

Gulla og Pall Oskar


sjaidi svipin a henni hehe gggrrr Posted by Hello

Tjald, naglalakk í stíl og hamsturshjól

Ekkert að þakka:) já heyrðu myndirnar! þad er forrit sem heitir hello from picasa. http://hello.com/how_bloggerbot_works.php skráir þig þar sem notanda og getur þa tengt það beint við síðunna þina og þær sem þu ert skráð á! svo bara fikta!
Ég er búin ad fá næsta landshluta samþykktan þannig eg er á fullu ad undirbúa felt. Planið er ad taka vesturland og vestfirði næst! þannig eg kem við hja vinum okkar á barnum á ísafirði. Aldrei ad vita ad ég taki bleika skyrtu með mer bara svona til að vera í stíl eins og síðast. Það eru um 40 stöðvar sem eg ætla ad komast yfir ad þessu sinni þannig planið er ad fara amk 3 ferðir. það verður svo yndislegt ad komast út! nú er bara að leggjast á skeljarnar og byðja um góða tíð þannig ég krókni ekki í tjaldi einhversstaðar.. spurning um ad leigja ser gimp til ad halda á mer hita!! EÐA ekki.. Ég er svo ad sjá þetta fyrir mer.. hlakka svo til ad fara.. þannig eg sé mig fara og vera í tjaldi og allt eitthvað voðalega nátturulegt... á eftir að sjá það gerast!! ég á mjög líklega eftir ad fara inn á næsta sveitabæ.. leita uppi símasnúrunna til ad koma mer í internet samband! og naglalakka mig svo um kvöldið, med geisladisk í spilaranum og med rafmagnshitaða kaffið mitt! finnst ykkur ekki þetta sennilegri saga????
Framundan! Eg get ekki lýst þvi öðruvísi en ad það stefnir allt í geðveiki á laugardaginn. það er eg sem sagt versus 13 stykki af 9 ára stelpum í afmælis brjálæði í 4 tíma. það virðist vera sem einhver takki í þessum skvísum fer á on og allt verður kreisí þegar þær mæta í afmælisveislur. Öll samskipti fara fram á mjög hágum nótum og þær æpa til skiptis og hlaupa í hringi.. allar í röð. svo grætur afmælisbarnið þvi hún fær ekki að ráða ÖLLU!! Dettur helst í hug ad fá svona hamsturs hjól og setja þær inní þad.. losa þessa orku! Það sem er mest brilljant við þetta allt saman er ad veislan fer fram í fjölsk.og húsdýragarðinum þannig það verður hægt ad sleppa þeim lausum. Það verða pylsur á grillinu þannig endilega komiði og hjálpið mér ad halda geðheilsunni.

6.02.2004

skvísur


Gaesaveisla 1 mai Posted by Hello

mom,dad and my sister


þetta er fyrir þig stebba !  Posted by Hello

uupps

sorry!! þetta tókst óvart!!!

6.01.2004

Gamla í Brók

jæja.. þýðir ekkert ad vinna of mikið! ég er ad hreinsa gögn þannig ef eg tek mer ekki pásu frá þessu fer ég að segja unix brandara á óhentugum stöðum eins og sumir hafa gert!!!!! áfram med frí sögur! ég get stolt sagt frá ad það er ekki nóg med ad íbúðarmálin séu í deiglunni heldur er undirritaður verðandi landareigandi!!! Ef eg fæ ekki íbúð með stórum garð, pálmatrjám, sundlaug og fullt af gimpum þa er alltaf séns á ad láta draumin rætast í borgarfirðinum!! ég sé nú ekki framá að þad rísi neinn bústaður þar á næstu mánuðum en það getur ekki verið annað en notalegt að tjalda þar og anda að sér sveitaloftinnu!!! Ef ég næ ad draga ykkur með mér norður í rafting þá er þetta skyldustopp.. eins og allar ísbúðir á leiðinni ;)
Landið er ekkert sérstaklega stórt en ofboðslega fallegt og útsýnið er úhúúúú!! Svæðið er kjörið útivistarsvæði og stutt á barinn í bifraust.. þannig eg get ekki beðið um meira!!

Föstudagur

Ég get ekki sagt ad þetta frí hafi verið kristilegt! Margir nýttu sér ef til vill þessa kristnu frídaga til ad fara í kirkju og samgleðjast fermingarbörnum á landsbyggðinni en ég get ekki sagt það sama. Enda kanski ekki þekkt fyrir ad sinna þessum hluta samfélagsins.. nema þá kanski helst fyrir ad upphefja gyðjunna, einnig að akitera og trúa þvi ad guð sé kona;) Finnst því plottið í da vinci lykklinnum algerlega brilljant og er algerlega tilbúin ad taka upp þá aðferð sem sá hópur tileinkar sér i bænaiðkun... Enda er varla til betri leið til ad nálgast það guðlega og alsælunna ;)
En að öðru.. Byrjaði fríið á því að koma dýrinnu á rútunna enda hafði hún fyrir löngu ákv. að eyða sínu fríi með föðurfjölsk. .. Planið mitt var að vera bara rólega þessa daga og læsa djamm og drykkju kvikindið einhversstaðar.... Föstudagurinn gekk samkv. plani og ég eyddi kvöldinnu í Hveragerði á upphersluheimilinnu hjá gömlu krúttunum mínum. Þau eru bara nokkuð sátt yfir ad vera þar, enda er hann ad koma sér i form fyrir róðurinn í sumar! hann er tilbúin með kvótan og allt er klárt.. eina vandamálið er að hann er á níræðis aldri og getur varla gengið.. en það er bara aukaatr. að hans mati!! hhmmmmmm... Hún kemst á kaffihúsin og veitingastaðinna í hverfinnu þannig græna grasið er ekkert alveg ad fara með hana.. Eina vandamálið er, eins og þau sýndu mér, er að í lögum hælisins stendur ad notkun á áfengi jafngildi brottvísun.. Þau voru að ræða það hvort þau ættu að stelast!! þau voru eins og unglingar.. hí hí .. Sem sagt fínt kvöld :)